föstudagur, 23. september 2011

Blogglok.........

Ég er mikið að hugsa um að hætta að blogga, ætla að sjá til hvernig nýja facebook með "timeline" verður og sjá svo til. Mamma verður bara að fara á facebook eða fá að kíkja hjá Hjálmari. Svo eru fréttir af strákunum á barnalandi..........fyrir utan að við sjáumst á msn nánast vikulega. Andleysi til að blogga er líka ástæða til að hætta þessu.........
Læt vita þegar ég er búin að ákveða mig.
Góða helgi, Inga

miðvikudagur, 31. ágúst 2011

Uppgjör sumarsins 2011

Veit samt ekki alveg hvar ég á að byrja, kannski bara á því að hér í Germany var víst blautt sumar og þeir sem voru hér í fríi voru heldur fúlir út í sumarfríið en Henrik fór á 1. fótboltaæfinguna áðan og ég spjallaði við nokkra þar. Einn pabbinn sagði m.a.s. að á Spáni hefðir rignt alla fyrstu vikuna og það mikið! Ég tel mig því mjög heppna bara, fékk örfáa rigningardaga, annars bara sól og þurrt veður. Fékk svo sem ekkert Mallorca veður en því býst ég nú aldrei við á Íslandi..........nú er ég ljúga, vikan eftir Mærudaga var þokkaleg þó svo að fólki hér finnist nú 25° hiti engin bongóblíða. Síðan að við komum heim hefur rignt flesta daga en í dag var fínt veður, 20° og sól annað slagið, hlýnandi :)

Best að setja inn eina mynd svona til að minnast Íslandsferðarinnar...
Mærudagar á fullu

Ég er allavega sátt við þessar 5 vikur NEMA að ég er alltaf jafn löt að heimsækja fólk.......fór að hugsa um það að ef ég heimsótti ALLA  væri ég í heimsóknum ALLA daga. En svona er þetta nú bara, ég hitti reyndar vinkonu sem ég hafði ekki séð í 4 ár, heimsótti hana samt ekki heldur kom  hún til mín. Takk fyrir heimsóknina Inga Jóna. Svo komu Gummi og Íris í óvænta kvöldheimsókn, það var indælt. Allir eru alltaf velkomnir á Garðarsbraut 53. Við tókum m.a.s. á móti 2 Þjóðverjum sem ég þekki aðeins héðan. Verst að við vorum ekki með svið eða slátur í matinn þann daginn heldur Tacos! Oh jæja.

Þessi aukakíló sem hrönnuðust á mig á Íslandi leka nú af. Svona er það að sitja bara og éta, eftir morgunmat kemur hádegismatur, þar næst kaffitími og svo kvöldmatur.......jafnvel kvöldsnarl. Enginn hreyfing með þessu plús íslenskt nammi. Þetta gera 3-4 kíló takk fyrir! Svo sit ég núna og borða Bingókúlur..........Var að enda við að borða rækjusamloku. Finn að hjartslátturinn eykst eftir þetta lakkrísát, best að hætta NÚNA. Get átt þessar örfáu kúlur til góða seinna ;)

Rakel  "litla" systir varð þrítug 25.7.

Framundan er spennandi mánuður, litla systir á eignast sitt 1. barn og mamma á afmæli. Ég er m.a.s. búin að kaupa afmælisgjöf. Verð að koma henni í póst sem fyrst. Ætla að standa mig núna í því að senda gjafir á réttum tíma. Ferlegt þegar fólk er að fá gjafir langt eftir afmælið. 

Mig grunar að Henrik sé sofnaður.........strákarnir voru í skemmtigarði með gæslunni í dag og svo var fótboltaæfing og ætli lítill maður sé ekki þreyttur. Ætla að gá...........neibb, hann tórir enn en þeir liggja báðir í holunni minni og horfa á Svamp Sveinsson. Sjónvarpið í stofunni er við það að gefa upp öndina og það á víst að reyna að láta gera við gripinn. Veit nú ekki hvort að það sé eitthvað hægt......sjáum til. Algert drasl þetta nýja rafmagnsdót, sjónvarpið er t.d. ekki orðið 4. ára. 

Hvað passar betur við sumarið en lúpína??

Nú er sumri tekið að halla. Samt er nú spáð um 25° hita hér um helgina. Er að hugsa um að fara á "ströndina" við Halterner Stausee  með Tarek vini Henriks og mömmu hans. Sjáum til hvort að spár rætast. Væri nú gott að fá smá yl í kroppinn, kannski smá tan líka ;)

Þetta er orðið gott, þangað til næst. Hafið það gott öll sömul og við sjáumst.

laugardagur, 27. ágúst 2011

Heimferð búin.......

...nenni nú samt ekki að blogga mikið alveg strax, svo margt sem sveimar um í huga mér en ég er ekki í rétta gírnum akkúrat núna. Langaði bara að breyta efsta blogginu, leiðinlegt að hafa "Heimferð nálgast" efst á lista svona þegar ég er komin hingað heim núna, allstaðar heima, hér og þar ;)


Þrumuveður úti núna, sit í eldhúsinu og horfi út, ætla að fara að huga að kvöldmat enda fínt að borða um sexleytið. Ætla nú bara að hafa fisk og kartöflur, að ósk Julians. Er búin að  þvo 3 vélar, þrífa og laga til, taka upp úr öllum töskum ofl. Nú þarf ég að skottast upp með töskurnar, taka asskoti mikið pláss hérna inni. Þarf líka að losna við dýnuna hans Seydi en hann keypti sér nýja um daginn. Óþarfa dót svona til lengdar.....

Tók hring í bænum áðan, það var alltaf jafn indælt. Keypti ekkert merkilegt en vantaði sárlega klósettpappír og ég skutlaðist því í dm og keypti hann ásamt fleiri nauðsynjum. Kom aðeins við í Netto á leiðinni heim, en þá kom skýfall og við urðum smá blaut áður en við náðum inn, sluppum samt ágætlega. Verslaði smá og labbaði svo heim í sól!! 

Seydi fór eitthvert að kaupa bíl, ekki eftir neinu að bíða með að vinna. Fótboltagrill  hjá honum og gaurunum hans á morgun, þ.e. ef það rignir ekki of mikið........sjáum til.

Jæja, þetta er gott í bili, lengra blogg mun fylgja á næstu dögum. Ég lofa.

Inga

sunnudagur, 17. júlí 2011

Heimferð nálgast....

...sem þýðir það að ég þarf að pakka niður! Ekki beint uppáhalds, jafnvel þó að ég sé alls ekki að gera það í 1.skipti. Alltaf koma upp sömu spurningarnar um hvað á taka með??? Bleika bolinn, uppáhaldsbolinn, fína bolinn, fínu skóna,strigaskó, fínu peysuna, flíspeysuna, lopavestið, náttbuxur, gallabuxur?????? Hvað á að taka með fyrir strákana er líka eilífðar spurning.......þykka peysu, þunna peysu, gallabuxur, fínni buxur, jakka, stígvél, skó (þoli ekki að ferðast með skó) osfrv. osfrv.????? Núna er taska strákanna orðinn full, rétt um 20 kg. Mín er orðin 16 kg. og ekki allt komið í hana........ætla að taka þriðju töskuna með, svona sem nátt-/fataskiptistösku. Ég verð alveg að stoppa mig af í þessu stressi, ég EKKI að fara að vera með yfirvigt sko enda má ég koma með 60 kg. plús handfarangur EEEEEEEEEN ég nenni ekki að hafa mikið í handfarangri OG það er höfuðverkur hvað á að koma með, hvaða föt passa við hvaða tilefni. Ég þarf að hafa eitthvað til að fara út á lífið, eitthvað til að fara í göngutúr, eitthvað til að fara í sund (á reyndar sundbol heima), já og svo skó við öll þessi tilefni! Allar konur í fjölskyldunni svo fótnettar að ég get ekki fengið neina skó lánaða hjá  þeim........heldur ekki hjá vinkonum. Djöfull er ég að stressa mig á þessu alltaf hreint, þoli það ekki og reyni að stemma stigu við því, tekst svona la la. Finnst ég alltaf vera að gleyma einhverju. En það verður bara að hafa það þá........mikilvægast er að koma með passana, myndavél (ekki gleyma hleðslutækinu samt), gemsann, peningaveskið (með kortum og peningum), sjúkrakassakortin og smá snyrtidót. Basta!

Engin mynd í dag, blíðuveður úti, 20° og skýjað, glittir í blátt annað slagið. Afmæli hjá frænda strákanna á morgun, hitta Ricarda á þriðjudaginn, fótboltaslútt á miðvikudaginn og svo er bara kominn fimmtudagur! Verð fegin þegar ég lendi.........nema að ég stressast alltaf smá við að fara í fríhöfnina. Reyndar ekki eins slæmt núna þegar strákarnir eru orðnir svona stórir en samt, alltaf smá stress í gangi í minni........Æi, skítt með það.

Góðan sunnudag

mánudagur, 11. júlí 2011

Bara kominn júlí.........

Alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, mér fannst ég bara hafa bloggað í gær en var að sjá það að ég bloggaði síðast um Jónsmessu eða 21.júní! Leti er þetta........eða bara ekkert að segja, nú eða enginn tími. Ég gef mér allavega ekki tíma til að blogga eins og er.  Nú er ekki nema rúmlega vika í Íslandsferð..........er þetta eðlilegt? Ég er að hugsa um að pakka niður flestu á sunnudaginn, nenni ekki að halda veislu fyrir fjölskylduna en Henrik verður víst 7 ára á laugardaginn og hann vill auðvitað halda veisluna í Kinderwelt með vinum sínum. Svo er hvort eð er fjölskylduveisla á mánudaginn þegar Jemain frændi hans verður 6 ára.......Nei, ég ætla að sleppa  þessu í ár, nenni því bara ekki, í alvöru talað. Á eftir að komast í búðir áður en ég flýg, kaupa fyrir Unni systur, afmælisgjöf handa Hlyni ofl. gjafir. Gæti kannski komist á miðvikudaginn en þá er ég í fríi því að ég ætla að hjálpa við íþróttavikuna í skólanum. Verður fínt að gera eitthvað annað en að "hanga" á verkstæðinu.

Átti aldeilis indælan sunnudag en Seydi tók strákana með í fótboltann. Ég dreif mig út að hjóla, eitthvað út í buskann, upp götuna, til hægri í Marl, aftur til hægri og var allt í einu komin í Oer-Erkenschwick áður en ég kom aftur til Recklinghausen. Ljúft að láta sig renna heim, niður í móti.  Tók eina mynd á leiðinni. OH, hún er ekki í fartölvunni minni, bara í stóru tölvunni........kemur seinna, hehe.



Ég ligg nefnilega uppi í rúmi, strákarnir sofa, Henrik greyið með risa roða eftir (mjög sennilega) geitungabit/stungu. Var að kanna hvað þetta gæti verið hérna á netinu og komst að þessari niðurstöðu. Litla greyið er víst frekar viðkvæmur fyrir stungum og bitum. Elsku kallinn minn. Er að pæla í því hvort að ég eigi að ná í Seydi........hann liggur á sófanum inni í stofu. Ekki beint þægilegt að sofa þar EN  hann getur sjálfum sér um kennt, verður bara að drullast inn í rúm áður en hann sofnar eða......... Ætla að hugsa málið betur ;)

Best að fara að hvíla sig, þarf að vakna kl. 6:30 eins og alltaf. Spáð bongóblíðu á morgun, spurning um að drífa sig í sund???